Drepstokkur
SpjallSpjall
LeikirLeikir
FacebookFacebook
Nánar

9.1.2012

Hvað er svo Pakkhúsið?


Okkur í Pakkhúsinu hefur fundist að mikið af ungmennum Ábrorgar viti hreinlega ekki hvað pakkhúsið er. 
Hlustið nú vel... Pakkhúsið er ungmennahús Árborgar og er opið öllum frá 16 ára og uppúr. Við erum með opið frá kl.14-23 alla virka daga vikurnar nema á föstudögum er opið frá kl.14-17.  
Pakkhúsið er á 2 hæðum og hér er NÓG að gera! Við erum með 2 stk. skjávarpa. Annar er tengdur við Playstation 3 tölvu og hinn er tengdur við TV. Við erum með stöð 2, skjá 1, bíó rásina, stöð2 sport pakkann og miklu fleirra. Hér er taflboð, nintendo 64 retró tölva, borðspil, hlutverkaspil. Öll Séð&heyrt blöð seinustu ára, lifandi vísindi. Foosball borð, Pool borð, Píluspjald. Einnig erum við með Hljóðupptökuver og hljómsveitaraðstöðu þar sem er í boði að æfa og taka upp afreksturinn. Svo er hönnunarrými sem við erum að vinna í að gera kósý og þar er bæði vennjuleg saumavél og overlock saumavél, hönnunarborð og góð aðstaða til að mála, sauma eða hanna. Við erum með fullbúið eldhús og nóg af plássi þannig að hér er hægt að baka, elda, jafnvel halda námskeið ef fólk hefur áhuga. 
Pakkhúsið er ekki lengur skemmtistaður fyrir fullorðnafólkið heldur bókstaflega skemmtistaður fyrir ungmenni Árborgar, hvort sem þú ert gaur eða pía. Komdu bara og tjékkaðu á þessu!
Kv Pakk.




Prenta frétt Senda frétt Skrifa athugasemd Deila á Facebook
Til baka










Viljir þú bæta við athugasemd hér, smelltu þá á hér að ofan.









Pakkhúsið, Ungmennahús Árborgar  |  Austurveg 2a  |  800 Selfoss  |  Sími 480 1970                                                                                                                  Netfang: pakkhusid@arborg.is