Nánar
19.1.2012
Aragrúi - Sunnlenskt band![]() |
|||
|
|||
|
|
|||
Það virðist sem að suðurland sé duglegt að ala af sér ungt fólk með tónlistarhæfileika. Núna er sprottið upp nýtt band og þau kalla sig Aragrúi. Þetta eru 7 krakkar á aldrinum 15-16 ára og æfa þau stíft í stúdióinu hjá okkur í Pakkhúsinu.
Það skemmtilega við þetta band er að þetta eru 5 stelpur og 2 strákar (sem telst nú ekki mjög algengt hlutfall í rokkbandi nú til dags), þau nota bæði blásturs og strengjahljóðfæri til að búa til skemmtilegan bræðing sem hefur ekki heyrst á suðurlandinu áður.

Aragrúi er búin að spila á nokkrum tónleikum í Pakkhúsinu og FSu og fá mjög góð ummæli.
Krakkarnir eru ekki bara búin að nýta æfingaraðstöðuna hérna í Pakkhúsinu heldur líka búin að nýta sér upptökuaðstöðuna og taka upp 2 lög. Þetta hafa þau gert mestmegnis sjálf þannig að hver veit nema það sé tilvonandi hljóðtæknimaður að fæðast í leiðinni.

Það verður gaman að fylgjast með þessu unga fólki í náinni framtíð og sjá þau heilla Íslandog vonandi fleirri þjóðir í kring.
Hérna er slóð sem tekur ykkur beint á Aragrúa á youtube.
Viljir þú bæta við athugasemd hér, smelltu þá á
hér að ofan.