Drepstokkur
SpjallSpjall
LeikirLeikir
FacebookFacebook
Nánar

23.1.2012

Hefur þú áhuga á að eyða viku í Pisa


Hefur þú áhuga á að ferðast, hitta nýtt fólk, kynnast framandi menningu, koma á nýjar slóðir og skemmta þér? Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS munu senda fimm manna hóp til þátttöku í spennandi verkefni í Pisa á Ítalíu: S.P.O.R.T. together. Langar þig til að slást í hópinn?
 
Hvert: Pisa, á Ítalíu
 
Hvenær: 20.-27. mars 2012
 
Umsóknarfrestur: Miðvikudagurinn 1. febrúar 2012

Þema og markmið:
Verkefnið ætti að höfða sérstaklega til íþróttaáhugafólks því það gengur m.a. annars út á hvernig nota má íþróttir sem tæki til að hrista saman ungt fólk af ólíkum uppruna og efla félagslega vitund þess. Lögð verður áhersla á  mikilvægi þess að temja sér heilbrigt líferni, leggja stund á íþróttir og huga að umhverfis- og náttúruvernd.
Skilyrði til þátttöku: Umsækjandi þarf að vera á aldrinum 18-25 ára (hafa náð 18 ára aldri á brottfarardegi), vera áhugasamur um umhverfis- og félagsmál og hafa gott vald á ensku.
 
Þátttökulönd: Grikkland, Tyrkland, Tékkland, Ísland, Ítalía og Spánn.
 
Aðstaða: Gist verður á farfuglaheimili í miðbæ Pisa.
 
Kostnaður: Skipuleggjendur verkefnisins sjá um allan kostnað við fæði og húsnæði. Auk þess eru þátttakendur styrktir um 70% af útlögðum ferðakostnaði, þó að hámarki 315 evrur, sem greiðast eftir að verkefninu lýkur og kvittunum hefur verið skilað. Umsýslu- og þátttökugjald til SEEDS er 20.000 krónur og greiðist af þeim sem valdir verða til ferðarinnar. Gjaldið fæst ekki endurgreitt.

Umsóknareyðublað má finna á eftirfarandi link og eru áhugasamir beðnir um að fylla það út á ensku og senda okkur fyrir miðvikudaginn 1. febrúar 2012.
 
Frekari upplýsingar veitir Valdís Gunnarsdóttir vala@seeds.is
 






Prenta frétt Senda frétt Skrifa athugasemd Deila á Facebook
Til baka










Viljir þú bæta við athugasemd hér, smelltu þá á hér að ofan.









Pakkhúsið, Ungmennahús Árborgar  |  Austurveg 2a  |  800 Selfoss  |  Sími 480 1970                                                                                                                  Netfang: pakkhusid@arborg.is