14.4.2010
Skýrari Dagskrá|
|
|||
Nú styttist í Drepstokk og er dagskráin farin að skýrast. Átta einstaklingar hafa skráð sig í Fatahönnunarkeppnina og hefst hún með námskeiði á fimmtudagskvöld. Sama kvöld mun útvarpshópurinn hittast. Fimmtudagskvöldið verður því nokkuð rólegt en formleg setning verður á föstudaginn kl. 18:00. Þá munu ráðamenn og stjórnmálamenn láta sjá sig og því um að gera að mæta og ýta aðeins við þeim fyrir kosningar. Þeir verða þó ekki þeir einu sem mæta heldur munu ungir listamenn koma fram og svo mæta Frosti og Máni og opna útvarpið 89,9.
Hér að neðan má síðan skoða nákvæmari dagskrá Drepstokks
Fimmtudagur 15. apríl 2010
17:30 - 22:30 Fatahönnunarnámskeið
18:00 - 20:00 Útvarpshópur hittist, lærir á tæki og tól og setur upp dagskrá
Föstudagur 16. apríl 2010
Eftir hádegi Undirbúningur fyrir útvarp
Eftir hádegi Fatahönnuðir vinna að sínu efni
18:00 – 18:45 Setning Drepstokks
Nýja tónlistar, upptöku og hönnunarrýmið opnað
Fyrsta myndband unnið í Pakkhúsinu sýnd
Ungt tónlistarfólk spilar
18:45 – 19:30 Frosti og Máni frá X-inu Frosti og Máni svara spurningum og deila reynslu.
19:30 – 20:30 Frosti og Máni opna útvarp 89,9 með ungum sunnlendingum
20:15 – 21:15 Ísland – Frakkland á tjaldi niðri
21:00 – 23:00 Spilakvöld í Pakkhúsinu
Spilakeppnir
Varúlfur lokar kvöldinu
Laugardagur 17. apríl 2010
10:00 – 23:00 Hönnuðir vinna að sínum verkum
13:00 – 23:00 Útvarps 89,9 gangi
13:00 – 17:00 Fatamarkaður frá búðum úr RVK
16:00 – 18:00 Ísland – Frakkland í handbolta
19:00 – 20:00 Stuttmyndir til sýnis fyrir dómnefnd og aðra
22:00 – 03:00 Kvikmyndamaraþon
Sunnudagur 18. apríl 2010
10:00 – 14:00 Hönnuðir vinna að sínu efni
13:00 – 23:00 Útvarp 89,9 í gangi
15:00 - 17:00 Fatahönnunarkeppni
20:00 – 23:00 Tónleikar
Metropolice
Bloodgroup
Viljir þú bæta við athugasemd hér, smelltu þá á
hér að ofan.

