10.8.2010
Tómstundahús Árborgar óska eftir starfsfólki|
|
|||
Pakkhúsið, ungmennahús
7 einstaklingar í húsráð Pakkhússins
Pakkhúsið, ungmennahús Árborgar auglýsir eftir starfsfólki í hlutastarf í húsráð Pakkhússins sem taka mun til starfa þann 1. september n.k. Í húsráði munu sitja 7 manns og er ráðinu ætlað að skipuleggja dagskrá hússins og taka virkan þátt í uppbyggingu þess í samvinnu við forstöðumann og notendur hússins. Húsráðið mun halda reglulega fundi og sjá um kvöldvaktir í húsinu.
Leitað er að einstaklingum sem eru
- Á aldrinum 16 – 35 ára og hafa mikinn áhuga á að starfa með ungu fólki
- Hugmyndaríkir og geta starfað í hóp
- Sjálfstæðir og geta sýnt frumkvæði
- Með hreint sakarvottorð
Allir sem vilja hafa áhrif á þróun Pakkhússins og eru að leita að skemmtilegu starfi geta sótt um fyrir 25. ágúst 2010.
Skil á umsóknum og frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Þorsteinsdóttir, umsjónamaður Pakkhússins í síma 480-1950/846-0139 eða anna@arborg.is. Einnig er hægt að kíkja í Pakkhúsið á opnunartímum og spjalla við starfsfólkið í húsinu.
Félagsmiðstöðin Zelsíuz
Sveitarfélagið Árborg leitar að 4-5 starfmönnum í tvö mismundi störf í félagsmiðstöðinni Zelsiuz.
Dagstarfsmaður félagsmiðstöðvarinnar
Óskar eftir starfsmanni í 60 - 75% starf við Félagsmiðstöðina Zelsíuz. Starfsmaður er með viðveru alla dag milli 13:00 -16:30 og utan þess eru nokkrir fastir tímar í skipulagningu. Einnig er möguleiki á kvöldvinnu. Starfsmaður sér meðal annar um að halda utan um dagskrá, klúbbastarf og Z-ráð félagsmiðstöðvarinnar.
Viðkomandi þarf að vera félagslyndur, jákvæður, sjálfstæður og vera orðin 20 ára.
Gerð er krafa um stúdentspróf og hreint sakavottorð. Reynsla af vinnu með ungmennum er kostur.
3-4 kvöldstarfsmenn
Óskum eftir starfsmönnum til að vinna á kvöldopunum félagsmiðstöðvarinnar milli 20-22 fjóra daga vikunnar. Einstaklingur þarf að geta haldið utanum ákveðna dagskráliði og einn klúbb. Möguleiki á aukavinnu í kringum stærri viðburði.
Viðkomandi þar helst að vera orðin 20 ára en má alls ekki vera fæddur seinna 1991. Hann þarf að vera félagslyndur, jákvæður og ábyrgur. Krafa um hreint sakavotturð og reynsla af unglingum kostur.
- Ef þér finnst gaman að vinna með ungu skemmtilegu fólki
- Ef þú ert skipulagður einstaklingur
- Ef þú getur sýnt frumkvæði
- Ef þú vilt fjölbreytt starf
Þá gæti Zelsíuz verið fyrir þig.
Laun eru samkvæmt samningi Launanefndar sveitarfélaga og FOSS/Bárunnar.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst 2010, Við komandi þarf að hafa náð aldrinum 20 ára og geta hafið störf ekki seinna en 1. september 2010
Nánari upplýsingar gefur Anna Þorsteinsdóttir, umsjónarmaður Zelsíuz og Ungmennahúss í síma 480 1900 og á netfanginu anna@arborg.is. Umsóknum er hægt að skila til Önnu á Tryggagötu 23, 800 Selfoss enn einnig má senda umsókn á netfangið anna@arborg.is.
Viljir þú bæta við athugasemd hér, smelltu þá á
hér að ofan.

