Vetraropnun Mánudaga - Fimmtudag 14:00-23:00 Föstudaga 14:00-17:00 Laugardaga: Lokað nema annað sé auglýst á dagskrá Sunnudaga: Lokað nema annað sé auglýst á dagskrá
Sumaropnun Á sumrin er einungis opið á daginn en kring um 15. júlí og fram í ágúst fer er húsinu lokað vegna sumarfría.
Opnunartími Pakkhússins er breytilegur. Hægt er að fá húsið lánað og einnig geta starfsmenn haft opið fyrir utan opnunartíma þeim til gamans.
Himnaríki
Upptökuverið Himnaríki var byggt í Pakkhúsinu árið 2010 af feðgunum Bassa og Labba. Upptökuverið var byggt í þeim tilgangi með að leyfa ungmennum Árborgar að njóta þeirra forréttinda að kynnast upptökum og öllu því sem við kemur upptökuferlinu. Nú þegar hafa verið tekin upp mörg demó og upptökuverið er notað á hverjum degi, bæði undir upptökur og æfingar. Tímar fyrir upptökur og æfingar eru pantaðar í Pakkhúsinu.
Húsráð
Húsráð Pakkhússins samanstendur af 4 ungmennum sem sjá um m.a viðburði, umsjá hússins á kvöldvöktum og eru notendum hússins innan handar. Reynt er að hafa fjölbreytt úrval af fólki í húsráðinu og það er það svo sannarlega. Hver snillingurinn á fætur öðrum.