Himnaríki
Reglur fyrir Stúdeó (Boðorðin 10)
- Hver einstaklingur þarf að fá leiðsögn starfsmanns fyrir notkun á rými, tækjum og tólum.
- Drykkir og matur er bannaður í Control herbergi.
- Starfsmaður sér um alla mæka og snúrur.
- Ekki breyta neinum stillingum á preamps, mixer eða tengingum nema í samráði við starfsmann.
- Engir skór í æfingaraðstöðu.
- Ganga frá rými eins og komið var í það, ekkert drasl, ekkert vez.
- Láta vita með minnst dags fyrirvara ef einstaklingur/hópur afboðar sig í rýmið eða upptökur.
- Greiða þarf áður en byrjað er að nota aðstöðuna
- Skilyrði að skrá niður verkefni og nöfn einstaklinga í dagbók Stúdeósins.
- Táfýla og viðrekstur er með öllu óheimil.
AMEN.
Verðskrá fyrir Stúdeó
Æfingaraðstaða:
Ókeypis að æfa. (Skylda að bóka tíma fyrir æfingar og tilkynna öll forföll.)
Upptökur:
2000 kr klukkustund. (Innifalið er, starfsmaður í control herbergi, mækar, notkun á búnaði og rými).
Eftirvinnsla:
1500 kr klukkustund. (Innifalið er starfsmaður í hljóðblöndun og eftirvinnslu).
Tölvunotkun/myndvinnsla:
500 kr klukkustund. (Innifalið er, tölva, forrit og rými). Geymsla á gögnum er ekki leyfði í tölvunni þannig að fólk þarf að koma með eiginn flakkara, usb lykil eða skrifanlega cd’s.